þriðjudagur, júlí 02, 2002

man hvað ég var ge'eigt dugleg um helgina. Ég prjónaði og saumaði og eldaði fyrir svanga og einmana systur mína og tók til eftir hana og svo fórum við í heimsókn í bústað til ömmu og ... er þetta ekki nóg?

Mig langaði samt svo mikið að kíkja á djammið en það var enginn í stuði, enginn átti pening. Fólk ætlaði, svona almennt séð, bara að vera heima í leti, í mesta lagi að kíkja í bíó. Svo hitti ég vini mína á sunnudeginum og fæ þvílíkar djammsögur, þá höfðu allir í heiminum farið á djammið um leið og ég var komin í hæfilega fjarlægð austur fyrir fjall.
Oh, leiðinlegt að vera svona óheppinn...

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home