Fréttir af Herdísi
Fyrir þá sem ekki vissu þá er ég komin í nýja vinnu. Var ráðin með nokkurra daga fyrirvara í fulla vinnu sem fréttakona á NFS, Nýju FréttaStofuna. Fyrir þá sem ekki enn hafa séð þessa stöð, þá getiði farið inn á www.visir.is og smellt á vefTV, þá getiði horft á netinu.
Nú eru fjórar vaktir búnar og ég búin að tala við Garðar Cortes, Björgólf Guðmundsson, fasteignasala nokkurn sem selur Íslendingum hús á Spáni og forstöðumann skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins, svo nokkur dæmi séu nefnd. Fylgist með NFS, þá kannski líður ekki á löngu áður en þið heyrið nafnið mitt nefnt.
Ágústa skoraði á mig að svara nokkrum spurningum. Ég stenst ekki mátið, alltaf gaman af naflaskoðun.
Sjö hlutir sem ég ætla að gera áður en ég dey:
- ferðast til allra heimsálfa (já, líka Suðurskautslandsins)
- gefa út skáldsögu
- klifra 5.10 í klettum, fjórðu gráðu ísfoss, taka meiri köfunarréttindi, læra á skíði og straumvatnskajak og rafta niður fimmtu gráðu flúðir
- lesa allar Íslendingasögurnar
- búa á sama staðnum samfleytt í lengur en þrjú ár
- læra fimm tungumál til viðbótar (hið minnsta)
- vinna á stríðshrjáðu svæði eða við þróunaraðstoð
Sjö hlutir sem ég sé:
- fullt af bókum
- hnattlíkan
- klifurskór
- Íslandskort
- föt á gólfinu
- rúmið mitt
- og klukkan sem segir mér að það sé kominn háttatími
Sjö hlutir sem ég get gert:
- Sofið í tjaldi í heilt sumar
- þolað rigningu af æðruleysi í heilli tveggja vikna ferð
- stjórnað hundasleða skammlaust (ekki samt með grænlenska laginu)
- eldað kjötsúpu
- sagt ferðasögur
- gleymt öllu sem mér er sagt
- eytt heilu kvöldi í tölvukapal eða álíka tímaþjóf
Sjö hlutir sem ég get ekki gert:
- Klárað ritgerðir og önnur skilaverkefni fyrr en á síðustu stundu
- gert tvennt í einu
- lesið grænlensku, kínversku, arabísku, swahili eða hindi (en það skal ég geta áður en ég dey)
- bakkað í stæði svo vel sé
- sofið lengur en tólf tíma samfleytt
- stokkið á snjóbretti
- átt pennavini
Sjö hlutir sem heilla mig við hitt kynið:
- Gáfur
- skopskyn
- sjálfsöryggi
- glaðværð
- ferðaþrá
- falleg augu
- brosmildi
Sjö frægir sem heilla mig:
- Vigdís Finnbogadóttir
- J.R.R.Tolkien
- captain Cook
- Paulo Coelho
- Wangari Maathai
- Johny Depp
- Mahatma Gandhi
Sjö orð/setningar sem ég nota oft:
- Hæ sæta
- Það reddast samt einhvern veginn.
- Það verður bara að koma í ljós, ég veit ekkert hvar ég verð í framtíðinni. (Sem reyndar breytist kannski eitthvað núna)
- Je m'appelle Herdís, c'est comme R5, mais deux fois.
- Æ, ég steingleymdi því, fyrirgefðu.
- Afsakið að ég kem of seint.
- Búin að döbba og þekja, á bara eftir að setja inn söbbið, er búið að mosa fréttina?
Sjö lög sem kveikja í mér:
- Build me up buttercup: The Foundations
- I can't help myself (Sugarpie Honeybunch): The Four Tops
- Heatwave: Martha & the Vandellas
- Suspicious minds: Elvis Presley
- Modern Love: David Bowie
- Concrete schoolyard: Jurassic 5
- Good vibrations: Beach Boys
6 Comments:
hæ sæta
til hamingju með stöðuna á NFS
rosalega stolt af þér
ég og stebbi vorum að pæla hvort þú verðir svona kvenkyns Ómar Ragnarsson í framtíðinni eða svona
Edda Andréssdóttir
við hölluðumst bæði að kvenkyns Ómari
.. annars var ég með kollega þínum í partýi um helgina, heitir Kiddi.
ég mæli fremur með Eddu en Ómari ef þú ert að leita þér að fyrirmynd í fréttabransanum...
já god ekki Ómar! Bogi Ágústsson er minn madur;)
Samt er náttúrulega Ómar þessi týpa sem er alltaf á ferðinni. Uppi á hálendi o.s.frv. en annars er alltaf flott að skapa sér nafn fyrir eitthvað nýtt.
Herdís - fulli fréttamaðurinn! Bara að koma með uppástungur... kannski ekki of góðar. Hmm. Ble.
Ævarr
þakka góðar og ... áhugaverðar hugmyndir...
Við Ómar eigum sameiginleg áhugamál en það ber líka margt í milli. Annars er nóg að hafa dóttur hans í vinnu á nfs þó að ég fari ekki að apa eftir honum þar að auki.
Edda er flott, Sigmundur Ernir er mjög fínn, Haukur Hólm er brandarakall og það er margt af góðu fólki sem er minna í sviðsljósinu. Skortir ekki góðar fyrirmyndir.
Skrifa ummæli
<< Home