Frökkunum mínum fannst mjög merkilegt þegar ég staðfesti að krakkarnir í útilegunni, þeir sem væru enn í skóla væru alveg örugglega að vinna allt sumarið og hefðu unnið allt sumarið öll sumur frá því þeir voru amk 16 ára.
Quentin vildi þá endilega deila því með mér hvað hann hefði gert t.d. síðasta sumar: hann var búinn í skólanum í maí; í mánuð var hann áfram í Nantes þar sem hann var í skóla, bara að gera ekki neitt, djamma og njóta lífsins, svo var hann í mánuð í Angoulème þar sem fjölskyldan hans býr við að gera það sama, svo fór hann á flakk með vinum sínum í mánuð um Austur-Evrópu og svo kom hann til Íslands... Vinna? jújú, tvo daga!!!
Og hvernig lifa Frakkarnir af skólann? Jú, þeir sem eru ekki á veglegum mæðrastyrk eru styrktir af ríkinu!
0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home