Góð helgi... byrjaði á ættarmóti í Lundarreykjadal á föstudagskvöldið og fram á laugardag. Ég brunaði í bæinn til að fara í risastórt alþjóðlegt matarboð heima hjá Stebba sem stóð fram á nótt og endaði í náttfatapartíi og sleepover. Á sunnudaginn, eftir mjög góðar þynnkupizzur með alls kyns ofan á, brunaði ég í bæinn með þrjá Frakka og við fórum í dragfínt kokkteilboð í ráðhúsinu á vegum franska sendiráðsins í tilefni 14. júlí, þjóðhátíðardags Frakka. Þar fengum við ýmiss konar veitingar, snittur og fullt af víni. Og við hættum ekki þar heldur fórum á Tapasbar og drukkum laumulega nestið sem við tókum með úr ráðhúsinu og svo kíktum við í heimsókn og drukkum meira... og það var ekki gaman að vakna í vinnuna í morgun!!!
Dísa ljósálfur
hvað vitum vér menn?
0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home