Ég var að athuga veðrið til að sjá hvort ég fengi fallegt útsýni yfir landið þegar ég flýg á morgun... svo fattaði ég - doh...
Ég er svo vön að fljúga til Evrópu að í mínum huga eru órjúfanleg tengsl milli millilandaflugs og útsýnis yfir suðurströndina. En það er frekar að ég fái útsýni yfir Grænland, ef eitthvað er.
Ég man þegar stóð sem hæst æðið að lita á heimskorti þau lönd sem maður hefur heimsótt. Það varð til þess að ég strengdi heit að fara til annarrar heimsálfu á árinu, vegna þess að Evrópulöndin eru öll svo smá...
Í lok árs kemur kortið mitt til með að líta töluvert betur út, þegar búin að lita Grænland og á leið til Bandaríkjanna. Svo er þess virði að fara á vúffernámskeið (fyrsta hjálp í óbyggðum) í Ontario, fyrst ég er þarna í nágrenninu, til þess eins að bæta Kanada á kortið líka... Þá er ég góð í bili.
Svo er bara sama áramótaheit næst: að heimsækja nýja heimsálfu á árinu.
0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home