Fjallamennska og fréttamennska
Ég er búin að nota helgarnar vel undanfarið. Þetta er algjör lúxus fyrir mig sem ekki hef fengið að vera í helgarfríi, ekki svo árum, jafnvel áratugum skiptir.
Þannig að það sem af er vetri hef ég verið uppi um fjöll og firnindi, hangið í ís og reynt að standa á skíðum.
Vinnan mín er afskaplega skemmtileg. Ég fæ að tala við svo marga sem ég hefði ekki annars hitt og læri svo margt um svo margt.
Svo er svo skemmtilegt fólk sem ég er að vinna með, alltaf gaman í vinnunni og ekki lognmollan, sem hentar mér prýðilega.
Fór á fagnámskeið í fjallamennsku um helgina. Reyndar fimm daga námskeið, þannig að helgin byrjaði á miðvikudegi. Frábært að stinga af og eyða fjórum heilum dögum í klifur, skíði og línuvinnulærdóm. Góðar aðstæður fyrir norðan: bergtryggingar og þurrklifur við Munkaþverá á fimmtudeginum, ísklifur inni í Skíðadal á föstudeginum, skíði, snjóflóðapælingar og skíðabörur í Hlíðarfjalli á laugardeginum. Sunnudagurinn fór í fyrirlestra, myndasýningar og svo félagabjörgun og sprungubjörgun í klifurveggnum í Súluhúsinu.
Stórskemmtileg helgi.
3 Comments:
Gott að þér leiðist ekki dísa mín, þér fer best að hafa nóg að gera!!
saknaðar kv. ágústa
hvenær hefur þér leiðst! fyrir mér ertu þannig að þú býrð til e-ð að gera ef ekkert er að gerast! ... en gaman samt með nýju vinnuna... kíki á fréttirnar á vísi.is bara vegna þess að þú ert þar ... ;)
mér finnst nú skrýtin fréttakona sem segir engar fréttir af sjálfri sér ;) sakna thín saeta!
Skrifa ummæli
<< Home