Mér finnst samt síðan enn ekki vera eins og ég vil hafa hana. er búin að vera að reyna að betrumbæta en ákvað svo að reyna bara að búa til nýja, er að prófa Tripod og fleira. Mig langar nebbla að hafa e-ð meira heldur en bara bloggið - "bloggið er svo takmarkaður tjáningarmáti, það samræmist ekki my artistic integrity"!!! Mig langar að hafa alls kyns undirsíður: um mig, ferðir mínar um öll heimsins höf, myndir af mér og vinum mínum, það sem mér finnst skemmtilegt, um gæludýrin mín og auðvitað spes síðu fyrir ljóðin mín!!! Bloggið er svo hverfult, það lifir í nokkra daga en sekkur svo í hafsjó horfinna minninga og enginn vill sjá það frekar en gleymdar grafir....
lalalalala...
0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home