laugardagur, febrúar 19, 2005

Lífsins lengsta roadtrip fór ég um sídustu helgi. Kíkid á landakort og skodidi hvad er langt frá Kiruna nidur til Röros í Noregi, ekki langt frá Lillehammer. 2800km fram og til baka, á tveimur sólarhringum. 48 klst, thar af 44 í keyrslu!
Afraksturinn: komum til baka med 18 fullordna hunda og 9 viku gamla hvolpa.

Sá elg í fyrsta skipti á leidinni nidur eftir, einmitt vid thaer adstaedur sem ég vildi síst: 50 metra fyrir framan bílinn, hálka á veginum, kl fimm um nótt thegar vid höfdum keyrt stanslaust í 21klst. En mér til mikillar ánaegju tölti thessi elgkvíga rakleitt yfir veginn og hvarf inn í skóginn hinum megin.

Hef enn ekki séd hreindýr á veginum. Bara fullt af hraejum og beinum í vegkantinum. Mér skilst ad thad sé ófögur sjón thegar snjórinn brádnar ad sjá vígvöll vetrarins afhjúpadan.
En ég hef séd hreindýr í skóginum. Thau eru svo fyndin... thau grafa holu í snjóinn og kroppa mosa og fléttur á jördinni. Thess vegna sér madur eiginlega bara hjörd af hreindýrarössum standandi upp úr snjónum.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home