miðvikudagur, mars 16, 2005

Ég er komin heim.

Burt frá hundum, burt frá hreindýrum, burt frá snjó og vetri (búhúúú), burt frá vélsleðum, hundasleðum, gönguskíðum og fjörutíu stiga næturfrosti.
Burt frá lingonsultu og hreindýrakjöti, burt frá berjasaft, berjajógúrti, berjasúpu, berjabrauði,berjaköku...

Heim í grámuskulegt árstíðarleysi, ekki vetur en samt langt í vor, heim í hafís og stormviðvaranir.
Heim til fjölskyldu og vina, heim í ísklifur og jöklaferðir, heim í almennilega borgaða vinnu og sanngjarnan frítíma...
Heim í mömmumat...

Sama númer, sama netfang. Hafið endilega samband.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home