laugardagur, apríl 08, 2006

Það sem allir hafa beðið eftir

Til allra sem hafa verið að bíða eftir að sjá mig á skjánum: ef þið farið á netið (visir.is > vefTV) og kíkið á fréttirnar klukkan 22 í kvöld (7. apríl), þá verður ykkur loks að ósk ykkar.

Er á leið á árshátíð björgunarsveitarinnar á morgun. Það átti að taka allan daginn í fögnuð og byrja með alpastarti einhvers staðar í óbyggðum, en svo var tilkynnt um einhvern óskaplega mikilvægan óvæntan fund sem "á eftir að gjörbylta öllu starfi undanfaranna." Ég bíð spennt eftir því að sjá hvort þetta sé einhver auglýsingabrella fyrir árshátíðina eða hvort ég læðist út af fundinum til að hringja í fréttastofuna!!!

Svo hringdi Ívar fjallaleiðsögumaður í mig í dag og sagði að það vantaði leiðsögumann á Hnjúkinn.
"Ok, hvenær?"
"30.apríl, 6.maí, 13.maí, 21.maí, 22.maí, 28.maí, 5.júní..."
Gott að vita að það lítur vel út með bókanir uppi á Vagnhöfða.
Skemmst frá því að segja að ég jánkaði fyrstu tveimur dagsetningunum og ... svo sjáum við bara til. En það þýðir reyndar að allt sem heitir líkamsræktarátak verður að taka hressilegan fjörkipp á næstu dögum. Var af þessum sökum að reyna að dobbla Ólöfu með mér á Esjuna í fyrramálið. Svo er bara að sjá hvort við vöknum...

Eitthvað verð ég allavega að gera mér til dundurs ef ég verð bundin í báða skó í sumar - og hvorugur þeirra er gönguskór. Ekki gott að segja hvenær kemur í ljós hvort ég fæ eitthvað frí í sumar. Yfirleitt fáum við bara vaktaplan mánuð fram í tímann, fimm dögum áður en nýja planið tekur gildi. Ég vissi sem sagt bara í gær hvernig ég ætti að vinna um páskana...

4 Comments:

At 12:24 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

jidúddamía, ég er ekki að jafna mig á þessu! þú tekur þig stórglæsilega út á skjánum, ekkert smá sæt, og svaka klár... það hlýtur að vera slegist um þig, innan vinnu sem utan.
luv ya,
rut

 
At 5:21 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

endalaust gaman að sjá þig á skjánum, þú tekur þig þrusuvel út. Gangi þér áfram allt í haginn!!

 
At 8:18 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Þú varst glæsileg!

 
At 8:50 e.h., Blogger Þórhildur Hagalín said...

hae saeta frábaert ad sjá thig! mest skrýtid hvad thad var lítid skrýtid - greinilega faedd fréttadís :)

 

Skrifa ummæli

<< Home