Nú er ég búin að fá úrskurð mennisnefndar Jóns og Þorbjargar. Ég mæli með því að vandamál heimsins verði lögð í þá nefnd. Hún vinnur skjótt úr sínum málum og útkoman er óvéfengjanleg.
Þeir sem vilja glöggva sig á forsögunni skoði færslu miðvikudagsins 27. nóvember og skoðanir og andsvör tengd þeirri færslu.
Hér birti ég úrskurð nefndarinnar í heilu lagi:
"Mín skilgreining á mennastigum á Homo Sapiens Sapiens er eftirfarandi:
0-1 árs: Krógmenni.
2-5 ára: Barnmenni.
6-11 ára: Krakkmenni.
12-17 ára: Gelgmenni.
18-34 ára: Menni.
35-59 ára: Meðalmenni.
60-84 ára: Ellimenni.
85-99 ára: Hrummenni.
100+: Fornmenni.
Vonast ég til að þessi skilgreining verði innleidd í hug og hjörtu allra kvenmenna og karlmenna er þessa jörð byggja.
Jón Sigurður karlmenni."
Má af þessu sjá að ég fell í flokkinn Menni, og þarf því ekki að velta þessu fyrir mér lengur. Þannig að næst þegar sex ára barn spyr mig hvort ég sé unglingur eða kona, stór eða lítil, þá mun ég svara "Ég er MENNI" og bera höfuðið hátt.
0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home