miðvikudagur, nóvember 27, 2002

Á föstudaginn fór ég og hitti Ólöfu í Kennó. Hún var reyndar að taka viðtal við kennara í Háteigsskóla þannig að ég beið hennar þar í andyrinu. Þar kom hann Arnar Ingi og spurði mig hvað ég væri að gera.
- Ég er að bíða eftir vinkonu minni, svaraði ég.
- Er hún stór eða lítil?
- Emmm... hún er jafnstór og ég
- Er hún unglingur?
- Er ég unglingur?
- Hmmm... í hvaða bekk ertu?
- Ég er komin í Háskólann
- - - -
Og Arnar Ingi, sem sjálfur er í fyrsta bekk, vissi ekkert hvernig hann átti að flokka mig og þá væntanlega Ólöfu líka. Við gátum varla flokkast sem unglingar en greinilega hikaði hann við að halda því fram að ég væri kona. Leiðinlegt að vera á milli vita, ekki annað hvort eða heldur hvorki né.
Chick flick - Ekki lengur kjúklingur, ekki orðin hæna ... er ég ekki unghæna? Ungkona? Hvað með ungmenni? Mig hefur alltaf langað til að vera menni.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home