Þá er kominn tími til að flýja, leggjast út, þetta samfélag er mér ofviða. Ég er hætt, farin, tek ekki þátt í svona vitleysu lengur.
Farin á fjall, fallin í freistingu, fjalla nánar um þetta eftir helgi.
Fer nú reyndar ekki langt, verð ekki lengi. Ég ætla bara að fara í Tindfjöll með bjsv., á vit ævintýranna. Ég mun klifra fjöll og firnindi vopnuð broddum og ísöxum, síga niður stórbrotin klettabelti en vonandi koma óbrotin heim. Ég mun sofa annað hvort í óþéttum, mosavöxnum og mygluðum skála eða í hripleku tjaldi í hífandi roki.
- Minnist mín í bænum ykkar!
0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home