miðvikudagur, nóvember 20, 2002

Þvílík pressa á einn bloggara þegar hann fréttir að það sé búið að búkkmarka sig einhvers staðar úti í bæ... ég er að kikna.

En fyrst ég er á annað borð að þessu þá get ég deilt með ykkur nokkrum af þeim fjölmörgu fróðleiksmolum sem mér hafa áskotnast.

Nú, ég komst m.a. að því að það eru allavega fimm lönd í heiminum sem eru í tveimur heimsálfum, t.d. Tyrkland, sem er bæði í Evrópu og Asíu. Getraun dagsins fyrir ykkur er að komast að því hvaða lönd hin fjögur eru, þið megið svara í kommentadálknum. Svarfrestur er til hádegis á morgun, fimmtudag. Eins komst ég að því að það er 7495m hátt fjall í Tadsjikistan sem heitir Kommúnistatindur.
Eftir að Ágústa bað mig að athuga hvort ekki fengjust vaknipillur í Yggdrasil, heilsubúðinni sem er á neðri hæðinni á Kárastíg 1, þá leiddumst við út í rökræður um beygingu nafns þessarar ágætu verslunar. Ég fór svo inn í búðina og spurði afgreiðslukonuna þegar ég var á leiðinni í skólann. Hún sagði mér að hvort tveggja væri rétt, frá Yggdrasil og frá Yggdrasli. Svo bætti hún við mörgum fróðleiksmolum úr norrænni goðafræði sem ég ætla að geyma til morguns því ég er ekki viss um að mér áskotnist svona margir tvo daga í röð - geymum til mögru áranna, jájá.

Dagurinn í dag hefur sem sagt verið einstaklega fróðleiksmolaríkur. Á meðan á öllu þessu gekk fór svo Þórhildur á fund hjá skipulagsnefnd og lét gott af sér leiða. Sannast þarna hið fornkveðna að morgunstund gefur gull í mund. (Bara að láta vita af því að ég var mætt í hafragraut á Kárastíginn kl 7:30 - ansigt! til ykkar sem ekki höfðuð trú á Nýjum Lífsstíl.)

Greinilegt er að prófin eru að nálgast eins og óð fluga. Í stað þess að taka upp námsbækur og þykjast lesa eða sitja frammi í eldhúsi og spjalla og kvarta yfir því hvað maður er nú latur þá fékk ég lánaða landabréfabókina hennar Þórhildar og dundaði mér við að skoða hana - algjörlega samviskubitslaus! Næsta skref er svo þegar ég fer að festast í hinum ógnvænlega, heilaskemmandi Bubbleshooter, leiðinlegasta leik sem nokkurn tíma hefur verið fundinn upp. Námsmenn hafa hver sína leið til að sleppa undan ógnarþunga prófafargansins, helst má engin heilastarfsemi felast í þess háttar dægrastyttingu: ég dett í Bubbleshooter, aðrir sitja langtímum saman yfir kapli, svo eru sumir sem horfa á PoppTíVí - það er svo margt!

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home