þriðjudagur, nóvember 26, 2002

Hví, Guð, hví?
Af hverju get ég ekki haldið mig að verki þegar mest ríður á?
Þetta er í raun fjandanum magnaðra hvernig ég get alltaf fundið mér einhverjar ástæður til að vera ekki að læra og jafnvel talið mér trú um að þær séu góðar og gildar. Eins og í nótt þegar ég átti að vera að klambra saman bókmenntaumfjöllununni sem hefur hvílt á mér eins og mara síðustu vikur. Þá datt mér í hug að endurnýja kynni mín af höfuðskáldum 19. aldar og ég festist í ljóðalestri drjúga stund. Vissulega góðra gjalda vert en af hverju þessi tímasetning til að auðga andann?

Æ jæja -
Hvað vitum vér menn?

Harla fátt, held ég stundum.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home