mánudagur, desember 02, 2002

Þvílíkar hrakfarir: ég var að hjóla í skólann til að eyða tíma mínum í vitleysu, sem endranær. Fínasta veður og færi og ég var bara í sólskinsskapi. Ég var á leiðinni í Odda, kom niður skeifuna frá aðalbyggingu og beygði inn hjá Nýja-Garði. Þar sem ekki hafði borið á hálku alla leiðina tók ég beygjuna á fullri ferð og flaug að sama skapi af krafti af hjólinu í launhálkunni í einmitt þessari beygju. Ég hrapaði úr himnahæðum, lenti á olnbogum og hnjám og rann svo góðan spöl á maganum. Nú er gat á vinstra hné mér, hægri olnboga og buxunum mínum, allt saman frekar dapurlegt.

En góðar fréttir af helginni eru þær að ég fór við sjötta mann og einn hund og sigraði fjall sem ég hafði áður þurft að lúta í lægra haldi fyrir, sem er mjög gott. Frægðarsól okkar skein skært yfir Henglinum en var reyndar sest þegar við komumst á toppinn eins og sjá má á þessum myndum frá Pétri Steini.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home