"Hvað gerðir þú um helgina?"
"Ég fór ofan í holu og upp úr henni aftur, hélt svo í línu meðan félagi minn fór ofan í sömu holu og upp aftur. Svo fór ég oní aftur og aðra leið upp úr henni, erfiðari leið, alveg sjálf! Svo fór ég í þriðja skipti ofan í holuna og beið þar í þrjá tíma áður en ég kom upp úr henni aftur."
Stundum horfir fólk á mig eins og ég sé skrýtin. Sérstaklega þegar ég kem heim úr björgunarsveitarferðum.
Ég var á Sólheimajökli um helgina og þetta er holan mín og þarna er ég að síga ofan í hana.
Undanfararnir voru að kenna nýliðum fjallamennsku 2 og við undanrennurnar fengum að fylgja með á jökulinn. Á laugardeginum fórum við undanrennur eigin leiðir og fundum þessa ágætu holu meðan nýliðarnir voru að læra allt um ístryggingar. Við klifruðum smávegis og spáðum soldið í línuvinnu og tryggingum. Svo komu nýliðarnir og fengu að prófa holuna okkar og létu vel af. Þeir gerðu íspolla, sigu niður á honum og klifruðu svo upp aftur. Ég stóð niðri í holunni sem öryggisfulltrúi og athugaði belti, brodda og hnúta áður en fólkið fékk að klifra upp aftur.
Svo röltum við niður aftur, náðum í tjöldin okkar og röltum upp á jökul og sváfum þar.
Meðan flestir sváfu vært og rótt hrökk ég í leiðsögumannsgírinn og fór út um miðja nótt til að gæta að tjöldum, - "passa upp á túristana mína". Gífurleg bráðnun í gangi í hlýjum gustinum og sums staðar var bráðnað frá öllum hælum og ekkert sem hélt tjöldunum nema sofandi fólkið inni í þeim. Með góðri hjálp negldi ég niður hæla, skrúfaði aftur niður ísskrúfur, mokaði svo snjó á hælana til að einangra og hægja á bráðnuninni. Góð kennslustund í tjöldun á jökli.
Svo var bara að rölta aftur niður og pósa fyrir rútufylli af túristum sem óðu eðjuna upp í hné á blankskónum til þess að snerta á íslenskum jökli.
Góð ferð í góðu veðri, - komið sumar á Íslandi. Fín afslöppun eftir harðkjarnanámskeiðið á Þórisjökli. Ekkert rosalegt ísklifur, fundum ekkert stærra en holuna okkar, en mikið um góðar pælingar og ég held bara að flestir hafi skemmt sér vel, - og það er nú fyrir öllu.
0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home