þriðjudagur, apríl 18, 2006

Baldur VIII og skemmtipáskar

Kríaði út roadtrip í vinnunni í dag, aðallega til þess að hafa tylliástæðu til þess að fá vinnubíl lánaðan og skreppa í páskamat til afa og ömmu í Borgarnesi.
En svo er líka alltaf gaman að fara í roadtrip, - og aldrei nóg af fréttum af landsbyggðinni.

Fór og fylgdi nýjasta Baldri úr höfn fyrir hans fyrstu ferð yfir Breiðafjörðinn. Átti von á fólki með vasaklúta á bryggjunni og kampavínsflöskum skellandi á skipsskrokkinn, en varð fyrir sárum vonbrigðum. M.a.s. samgönguráðherra svaf á sitt græna, þó þetta eigi nú að heita hans heimabær.

Gerði frétt í gær um hvernig annan-í-páskum-böll heyra sögunni til. Hver man eftir því að hafa byrjað að hafa sig til og drífa sig í partí strax og var búið að kyngja páskamatnum? Allavega ég, á hverju ári í nokkur ár, alltaf á annan í páskum og annan í jólum.
Svo eru sveitaböll líka svo gott sem útdauð líka. Enda skrýtið fyrirbæri: ferðast í rútu í rúman klukkutíma til þess eins að dansa sig sveittan og kannski kyssa strák sem leiddist svo út í slagsmál fyrir utan þegar var búið að loka. Og svo rútuferð heim aftur og mæta í humarvinnsluna klukkan sjö...

Fékk gefins lítið páskaegg þegar ég verslaði í 11-11. Hlotnaðist málshátturinn "flýtur á meðan ekki sekkur", sem ég hef allavega stundum átt skilið.
Ætli "þetta reddast" hafi ratað inn í páskaegg ennþá? Það hlýtur að fara að koma að því, og þá panta ég eitt svoleiðis!

1 Comments:

At 10:30 f.h., Blogger Þórhildur Hagalín said...

Gledilega páska lambid mitt :)
Grísir valda, gömul svín valda var minn málsháttur - tek hann ekki mjög persónulega ;)

 

Skrifa ummæli

<< Home