laugardagur, ágúst 05, 2006

Ef ég þarf að nefna bestu tónleika sem ég hef farið á, þá nefni ég yfirleitt meðal annars Belle and Sebastian tónleika í Barcelona 2004. Var ótrúlega glöð að sjá að þau voru langt frá því búin að missa touchið; eins og stundum gerist þegar fólk er búið að spila saman lengi. Enn jafn mikil lífsgleði og leikur á tónleikum - og nýja platan er föst á repeat, mjög góð.

Hefði samt mest af öllu viljað fara austur á tónleikana á Borgarfirði: í ryðgaðri bræðsluskemmu sem gleypir allt hljóð þegar hún er tóm en virkar fínt þegar hún er full af fólki (að því er mér er sagt).

Hlakka samt mest til Airwaves. Byrjum á Wolf parade og Islands, Kanadasveitir eins og þær gerast bestar. Er rétt að byrja að hlusta á Mates of state en þau lofa góðu og svo er Go! Team víst eitt skemmtilegasta band sem hugsast getur á sviði. Þigg gjarna ábendingar um athyglisverðar hljómsveitir.

Þá er ótalið allt það besta úr íslenskri tónlistarflóru. Margt gott sem mig langar að sjá og annað sem ég ætla að uppgötva.

Ef aðeins maður gæti verið á fleiri en einum stað í einu. Vonir standa þó til þess að blaðamannapassatrikkið virki þarna líka og að við fáum fram-fyrir-röð-passa þannig að við sitjum ekki í raðasúpunni með pöplinum...

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home