Fór á Jónsmessuhátíð á Eyrarbakka á laugardagskvöldið. Margt um manninn og gaman að sjá allt þetta fólk sem maður sér ekki nema einu sinni tvisvar á ári.
Reyndar virtust allir hafa séð mig nýlega, enda reglulega inni í stofu hjá landanum. Fleiri en einn og fleiri en tveir sögðust vera svo stoltir af að sjá mig á skjánum og sögðust oft hafa sagt: þessi er frá Eyrarbakka!
Ég var ekkert að leiðrétta það, enda flókið að útskýra fyrir fólki að ég geti ekki svarað spurningunni "hvaðan ertu?" nema með því að segja að ég sé flakkari. Til að rifja upp söguna, þá var ég fjórtán ára þegar ég flutti á Eyrarbakka og hafði þá næstum átt eitt lögheimili fyrir hvert ár. Og ekki stoppaði ég sjálf mjög lengi á Eyrarbakka, jafnvel þó að fjölskyldan og lögheimilið séu þar enn, tólf árum seinna. Hins vegar eru bestu vinir mínir Eyrbekkingar og þannig heldur þorpið í mig á vissan hátt.
En Jónsmessuhátíðin er hvorki staður né stund til þess að afneita staðhæfingum um að maður sé Eyrbekkingur, jafnvel þó þær séu á misskilningi byggðar.
Skemmtilegast þótti mér að hitta feðginin Halldór Val og Ingu yngri sem vakna stundum á morgnana og horfa á sjöfréttirnar á NFS. Inga leggur við hlustir þegar hún heyrir fréttastefið og brosir þegar hún sér mig á skjánum. Hún kannski skilur ekki ennþá allt sem fram fer, enda þótt hún sé mannaleg og skýr miðað við átta mánaða gamalt barn. Halldór sagði hins vegar að ég ætti langt í land með að ná þeim hughrifum sem Sigmundur Ernir vekur hjá barninu; hún tekst öll á loft þegar hann birtist á skjánum, skríkir og hlær og slær sér á lær.
- Þá hef ég eitthvað til að stefna að!
3 Comments:
oooo vildi ad eg hefdi komist a jonsmessuhatidina.
gott markmid ad na sigmundi erni... sjalf tekst eg øll a loft thegar hann birtist a skjanum, hann er svo mikid sjarmatrøll. annars eru ahrifin lika møgnud thegar eg se thig birtast a skjanum, en thad er meira svona vuhu og klapp... svona eins og thegar eg horfi a eurovision, og ekki hefur thad litil ahrif a mann :D
Hva var ekki gaman að hitta mig ;-)
Jú, að sjálfsögðu, Ásta mín, og algjörlega ástæðulaust að skilja þig útundan í þessari frásögn... afsakið mig... :)
Skrifa ummæli
<< Home