þriðjudagur, maí 02, 2006

Það sést hverjir drekka Egils Kristal

Guði sé lof að áhorf á níu-fréttir NFS er ekki mikið. Og Guði sé lof að það er ekki hægt að sjá þær á netinu þannig að þið getið ekki farið og kíkt á níufréttir kvöldsins eftir að hafa lesið þetta.

Ég var nefnilega soldið sein inn í myndver í kvöld...
Svo var eyrað mitt ekki að virka (þ.e. talstöðin í eyranu á mér þar sem myndstjórn segir mér hvað er að gerast) þannig að ég heyrði ekki niðurtalningu og vissi ekki að ég væri komin í mynd fyrr en þau börðu í rúðuna og öskruðu á mig "ÞÚ ERT Í MYND!!" Á því augnabliki var ég hálf undir borði að leita að prompter-fótstiginu (prompterinn er textavélin sem gerir mér kleift að horfa í myndavélina og lesa á sama tíma) og ekkert í mynd nema vatnsflaskan mín, prýðis auglýsing fyrir Egils Kristal og slagorðið þeirra öðlast alveg nýja merkingu...

Í stuttu máli fann ég ekki prompterfótinn og las því fyrsta innganginn upp af blaði, móð og másandi af stressi og af því að hlaupa á síðustu stundu inn í myndver. Þá kom í ljós að sú frétt var ekki komin - sem ég hefði vitað hefði verið kveikt á eyranu mínu, og þurfti að lesa næsta inngang, líka upp af blaði, ekki mjög fallegt. Sú frétt var allt of stutt til standa upp frá borðinu þannig að ég gat ekki reddað prompternum fyrr en eftir þriðju fréttina.
Kannist þið við martraðardrauma þar sem þið eruð í vinnunni og ALLT fer úrskeiðis? Þetta var einn slíkur, sem óvart rættist.

En horfið endilega á tíu-fréttirnar, þar gekk allt vel, og svo skulum við láta eins og þetta hafi aldrei gerst!

5 Comments:

At 12:18 e.h., Blogger Þórhildur Hagalín said...

herra jeminí! tja thad sem ekki drepur mann...
luv luv

 
At 6:04 e.h., Blogger augnpot said...

Úff - ég hef lent í mjög mildri útgáfu af svona... nema það var ekki í sjónvarpi (sem betur fer)! Það er hægt að missa kúlið á fleiri en einn hátt...hahhaa!
Toodles!

 
At 8:00 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Það hefði nú verið pínulítið skemmtilegt að horfa á þetta.

 
At 12:34 f.h., Blogger pixy said...

hey!
ég missti sko ekki kúlið ef þú heldur það...

allt nema það!

 
At 5:49 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

ég heimta upptöku af þessu til að létta mér lund í ritgerðarskrifum...
viss um að þú hefur nú örugglega heillað landann með mannlegum mistökum þínum

 

Skrifa ummæli

<< Home