Munaðurinn eirðarleysi
You always want what you can't get.
Þegar maður er á kafi í vinnu vill maður helst bara slappa af.
Og þegar maður hefur tímann fyrir sér og þarf ekki einu sinni að fara fram úr rúminu, þá veit maður ekki ekki hvað maður á af sér að gera.
Þannig að ég fór í smánaflaskoðun, gúgglaði sjálfa mig og fann mitt innra sjálf.
Komst að því að það er ekki margt markvert sem stendur um mig á netinu. Huldukonan Herdís.
Svo leit ég um öxl og las mitt eigið blogg. Botninn datt úr blogginu þegar ég kom heim frá Kenýa, þegar krassandi ferðasögum sleppir, þá bliknar hversdagslífið í samanburði. Þá deyr bloggviljinn.
Svo greip ég niður í mitt eigið líf á nokkrum stöðum og komst að því að ég er ekki nærri jafnskemmtilegur penni nú og ég var einu sinni. Leiðinlegt það.
Er í léttvægri tilvistarkreppu núna, langar að tjá mig en hef ekkert að segja. Hversu dapurlegt er það? Orðin eru farin að þrýsta á flóðgáttirnar, en hafa enga atburði eða umhugsanir til að greina frá.
En það kemur að því að andagiftin snýr aftur. Á ellefta degi sumars vex mér ásmegin og ég dreg arnsúg á flugi, fylgist bara með.
3 Comments:
Ég hlakka til :)
Mundu samt bara ad thad er innihaldid en ekki umbúdirnar sem skiptir máli.
Blessuð
Hérna eru nokkrir af fréttamönnunum mínum á fréttastofu 4. SH í Lindaskóla. Þau fengu samtals fjórar kennslustundir til verksins; lærðu allt um leið og þau framkvæmdu. Nokkuð gott hjá þeim verður að segjast.
http://nemendur.ru.is/hlynur01/video/4sh_unnur_final.wmv
http://nemendur.ru.is/hlynur01/video/4sh_isak_final.wmv
http://nemendur.ru.is/hlynur01/video/4sh_Sigrun_final.wmv
Sæl Herdís,
Rakst á þetta blogg af tilviljun og verð að segja að þetta jafnast vel á við skemmtilega innganga að fréttum hjá þér!
Logi
Skrifa ummæli
<< Home