þriðjudagur, apríl 25, 2006

Á bakaravaktinni

Stóð bakaravaktina í morgun, sem og í fyrramálið. Fréttalesari morgunfrétta þarf að mæta klukkan 5 á morgnana, sem þýðir að ég stilli vekjaraklukkuna á korter yfir fjögur - í nótt!

Svo kem ég í vinnuna og við tekur kapphlaup við tímann að fylla upp í fréttatímana, enn frekar í dag og á morgun af því við erum undirmönnuð þessa morgna. Svo er það fréttalestur á heila og hálfa tímanum frá sjö til hálftíu, og aftur frá hálftvö til hálfþrjú.
Hefði aldrei trúað því hvað maður verður útkeyrður að hafa klukkuna yfir hausnum á sér, sem slær á heila og hálfa tímanum. Hafði ekki heldur fattað hvað maður kemur litlu í verk. Maður hefur yfirleitt ekki nema 15-20 mínútur á milli fréttalestra og þær mínútur fara yfirleitt í ótal ómissandi smáverk sem tengjast því að raða upp fréttunum fyrir næsta fréttalestur, þannig að það verður lítið úr verki að framleiða nýjar fréttir meðfram því að lesa.

Þegar ég kom heim í dag lagðist ég upp í rúm og þungsminkuð augnlokin sigu sjálfkrafa niður. Nú um tíuleytið er kominn háttatími, hefði jafnvel þurft að vera fyrr. Og þegar þið sjáið mig í sjöfréttunum í fyrramálið, þá verð ég búin að vera tæpa þrjá tíma á fótum...

3 Comments:

At 1:18 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

Takk fyrir skrifin frænka. Gaman að lesa eftir þig
Bubba

 
At 1:43 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

Ég dýrka hvernig þú segir "talsmaður viðræðunefndar starfsmanna" og "Dahab" og "vatnsflaumnum".

Moving up in the world mar ;)

Ekki gleyma mér þegar þú verður fræg.

 
At 11:38 e.h., Blogger Halla said...

Frábært að sjá hvað þér gengur vel:) Go girl!:)

 

Skrifa ummæli

<< Home