Boltabullur takið eftir!
Eins og fram kom í tíufréttum NFS í kvöld eru skráningar hafnar á stórmót í mýrabolta sem haldið verður á Ísafirði aðra helgina í ágúst. Hlýtur bara að vera stórskemmtilegt áhorfs, hvað þá að leika: fótboltaleikur í drullusvaði þar sem gamanið skiptir meira máli en úrslitin. Mæli með að áhugasamir fari í hópferð á Ísafjörð, er að hugsa um að fá að gera frétt um þetta, eða vera kamerukona fyrir Brynju Dögg, hún er víst á leiðinni til Norður-Finnlands til að gera heimildarmynd um íþróttina og hlýtur að vilja fara vestur líka...
Allar nánari upplýsingar á www.myrabolti.com
Önnur tilkynning: ég keypti fótbolta um daginn! Ætlaði að finna blakbolta fyrir strandblak, en þá er víst ekki hægt að kaupa nema á afviknum stað í Hafnarfirði einhvers staðar... Þannig að ég keypti fótbolta, - og þá kólnaði í veðri eftir margra daga úrvalsveður!
En ég heimta bolta á Miklatúni um leið og veðrið kemur til þess. Ólöf, heyrirðu það, þýðir ekki að beila og skríða inn á sirkus...
2 Comments:
mýrarbolti hljómar sem konunglegskemmtun og bolti á mikla ekki svo illa - ég er til í einspark þegar ég kem heim!
Sorry herdís, bjórinn á sirkus var bara svo girnilegur. En ég lofa að koma næst.
Skrifa ummæli
<< Home