fimmtudagur, maí 04, 2006

Grill og sörf

Nú er ég glöð í hjarta mér.

Beið alla síðustu helgi við símann eftir að einhver byði mér í grillpartí. Svona alvöru grillpartí með bjór og mússík úti í garði og sól sem sest án þess að nóttin komi nokkurn tíma. Bjöggi hefur lesið hugsanir mínar (eða kannski hef ég minnst á þetta við strákana í Valshamri á sunnudaginn) því nú er boðað til grillveislu í bakgarðinum hjá honum. Takk fyrir það.

Þá er aðeins eitt sem ég þarf til að fullkomna sumarið sem er að byrja. Það er fjörupartí með bálkesti, havaískyrtum, sörfi á fullu blasti og fáránlegum nýsjálenskum drykkjuleikjum. Hver tekur að sér að skipuleggja soleiðis?
Grunar reyndar að ég verði að láta það gerast ef á að verða af því. Svo látum við boð út ganga og þetta verður eins og í Varmalandi forðum daga...

3 Comments:

At 7:32 f.h., Blogger Þórhildur Hagalín said...

I'll be there!!

 
At 5:47 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

ég skal hjálpa þér að skipuleggja skan þegar ég kem heim þar sem sólin sest en engin er nóttin...

 
At 11:21 f.h., Blogger augnpot said...

Jess! I´m in.

 

Skrifa ummæli

<< Home