fimmtudagur, júní 15, 2006

Hver er laus í smá ferðalag í september? Hvað með alla þessa leiðsögumenn sem verða loks lausir eftir vertíðina, langar einhvern að koma með mér niður til Líbanons, Sýrlands og Jórdaníu?

Þar er hægt að máta kefíur og borða falafel, fljóta í Dauðahafinu og kafa í Rauðahafinu, geysast á úlföldum um eyðimörkina og leita að heilögum graal í steinborginni Petru þar sem Indiana Jones týndi honum (eða hvernig endaði myndin annars? missti hann ekki bikarinn í sprungu?)

Upp úr miðjum september er úrvalstími til að heimsækja þennan heimshluta, rétt eftir að flestir túristarnir eru búnir að steikja á sér tærnar í grillsólinni yfir hásumarið og hitastigið rétt að verða þolanlegt fyrir hvítnefja Íslendinga.

Og engar áhyggjur, ég hef sagt nóg af fréttum af bílsprengjum og öðrum ofbeldisverkum til að vita nokkurn veginn hvaða staði á að forðast í þeim efnum, og þeir eru flestir í öðrum löndum en ofangreindum, þó þeir séu kannski ekki langt undan. Svo hef ég heldur ekki áhuga á að ana út í opinn dauðann, frekar en milljónir annarra ferðamanna sem kjósa að heimsækja þessi lönd á hverju ári og koma heim heilu og höldnu.

8 Comments:

At 5:42 e.h., Blogger augnpot said...

Frásögn þín af "öryggi" staðanna hefur öfug áhrif myndi ég segja. Að nota "hvaða staði á að forðast" og "ana út í opinn dauðann" í sömu málsgrein gæti hrætt hvaða ofurhuga sem er. Ég myndi hiklaust koma þetta með þér ef ég hefði efni á... svo er ekki - nema ég vinni í lottóinu. We'll just have to wait and see my dear!

 
At 7:41 e.h., Blogger pixy said...

Já, en Þorbjörg, það þarf líka að lesa orðin á milli, ekki bara valda frasa...
Vona að flestir skilji þetta sem svo að ég telji þessi lönd örugg til ferðalaga, það var það sem ég meinti.

 
At 1:39 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

Við Steppo verðum í Indlandi, í Hampi að búldra og túristast, Goa og eitthvað svona fínerí.

 
At 7:24 f.h., Blogger Stebbi said...

Líst vel á en kannski ekki í september. Eru ekki fín skíðasvæði í Líbanon, þ.e. þegar það er búið að snjóa?

 
At 1:26 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

þetta hljómar meira en lítið spennandi. held ég muni samt eiga þessa ferð inni hjá þér, að svo stöddu.
luv

 
At 8:30 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

jú jú ansi spennandi endir, hann varð að velja á milli bikarsins eða beibsins og auðvitað valdi hann beibið.
Held að ég verði að eiga þetta ferðalag inni hjá þér, ef ég ætla að vera búin með þetta nám fyrir eftirlaunaaldur.

 
At 12:25 f.h., Blogger pixy said...

jú, vissulega fín skíðasvæði í Líbanon, innan um cedrustré í staðinn fyrir furu og greni... þjóðartréð þeirra, skreytir flaggið og svona.

Það er auðvitað pæling að fara bara í vetur, veit um fólk sem er alltaf til í gott flakk fyrir góðar brekkur. Svo er Beirút líka partíborgIN fyrir botni Miðjarðarhafs...

 
At 11:14 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

Það er aldrei að vita nema að þú náir að plata mig ef þú planar ferðina í október. Er ekki alveg ekta að byrja á einni jónu í Hollandi og pikka mig upp?

 

Skrifa ummæli

<< Home