þriðjudagur, júní 06, 2006

...og svo sagði Halldór af sér...

Ansi daufur dagur en hressilegt kvöld á Fréttastofunni. Ég mætti klukkan níu í morgun og hafði fátt eitt að gera í allan dag, annað en að garfast áfram í kvótamálum og fiskveiðistjórnun. Get nú slegið um mig með orðum eins og aflamark og veiðistofn, sem getur alltaf komið sér vel í góðu partýi.
Hlakka ekki til sumarsins ef þetta er forsmekkurinn að gúrkutíðinni þegar allir eru komnir í sumarfrí.

Svo var ég við það að fara heim þegar kallið kom. Við Kata skrifta vorum einar eftir á hæðinni þegar boðin bárust um blaðamannafundinn hans Halldórs á Þingvöllum klukkan níu. Þá gekk nú ekki að fara heim fyrr en það mál var til lykta leitt. Gekk síðust út úr húsinu klukkan hálfeitt.

En það verður mjög spennandi að fylgjast með hvernig málin þróast með Framsóknarflokkinn á næstu dögum. Guðni er í massífri fýlu, horfið á áttafréttirnar í fyrramálið og sjáið svipinn á honum þegar hann labbar í burtu á Þingvöllum. Og lesið svo yfirlýsinguna hans. Hann hefur líklega verið kominn með vilyrði fyrir formannssætinu upp í hendurnar og þá væntanlega utanríkisráðherrastólnum. Sjáiði hann ekki fyrir ykkur í sendiherraboðunum?
Það eru ekki öll kurl komin til grafar þó það sé komið í ljós hvað Halldór ætlar að gera...

5 Comments:

At 1:02 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

"Mr. Bush, this milk is gone a bit off. Trust me, I'm a professional."

 
At 6:31 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

hehehe, vinnan thin er svo svakalega fyndin og spennandi. mer finnst sko alveg eins og thu sert tharna ad bjarga heiminum :)
luv

 
At 3:56 e.h., Blogger augnpot said...

Mér finnst mjög erfitt að vera spennt yfir nokkru sem gerist í pólitík á Íslandi. Vonandi fer framsókn að gufa upp!

 
At 3:56 e.h., Blogger augnpot said...

Mér finnst mjög erfitt að vera spennt yfir nokkru sem gerist í pólitík á Íslandi. Vonandi fer framsókn að gufa upp!

 
At 1:15 f.h., Blogger pixy said...

Þetta er allt spurning um að sjá fegurðina í hinu smáa og fréttina í hinu ómerkilega.
Þannig þraukar maður gúrkutíð.

 

Skrifa ummæli

<< Home