miðvikudagur, maí 24, 2006

Jöklaferðir og túristaleikur

Alf félagi minn frá Bandaríkjunum er í heimsókn.
Ég keyrði frá Skaftafelli á aðfaranótt sunnudags og svo aftur þangað á mánudagsmorgni til að sýna útlendingnum landið. Og akkúrat þá er kaldasta vor í manna minnum og sandrok á leiðinni heim í gær.

Svona getur þetta verið, - óútreiknanlegt.
Greyið fuglarnir! Og litlu lömbin...

Svo mætti ég í vinnuna klukkan fimm í morgun. Og ekki dugði minna til en þrettán tíma vinnudagur.

Var m.a. að klippa innslag í Ísland í dag, úr efni sem ég tók uppi á jökli á öryggisnámskeiði hjá ÍFLM. Stökk niður í jökulsprungur undir Rótarfellsnjúki og reyndi að hlífa myndavélinni við mesta hnjaskinu... Var allavega mjög fegin að sjá að hún virkaði enn þegar hún kom aftur í bæinn. Kemur líklega í sjónvarpinu í næstu viku, þegar fólk er aðeins búið að jafna sig á kosningaæðinu.

Mér var boðið að manna kosningavaktina á Akranesi á laugardag og fram á morgun. Langaði rosa mikið til þess, hefði verið mjög skemmtilegt, en... ekki gaman fyrir Bandaríkjamann sem ekkert skilur í íslensku eða íslenskri hreppapólitík að hanga yfir kosningaúrslitum. Þannig að við förum líklega frekar á Snæfellsjökul að renna okkur í staðinn.

4 Comments:

At 12:45 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

a snæfellsjøkul ad renna ykkur... va hvad eg er abbo!

goda skemmtun, herdis min :)

 
At 3:51 e.h., Blogger Þórhildur Hagalín said...

gaman gaman! vona ad thid fáid svoldid gott vedur til ad njóta úti í náttúrunni :)

 
At 9:53 f.h., Blogger augnpot said...

Alf, Alf... eitthvað rámar mig í þetta nafn. Hmm. Sjáumst í vikunni sæta!

 
At 11:47 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

Hey ég heimta email um alf og veru hans hér... man sko vel eftir honum þegar ég var á Gásum með múruna í annarri og símann í hinni því fréttirnar voru svo skemmtilegar að þær máttu bara ekki bíða.... vil fá fleiri svoleiðis!

 

Skrifa ummæli

<< Home