mánudagur, júní 19, 2006

Mr. Skallagrímsson og skallakúla á enni

Fór með afa og Hildi að sjá einleikinn Mr. Skallagrímsson í Landnámssetrinu í Borgarnesi. Benedikt Erlingsson er snillingur. Egils saga á máli nútíma Íslendinga en samt ekki. Nægilega fornt til að maður gleymi ekki að þetta eru landnámsmenn en ekki Hollywoodapjátrungar.

Talandi um Hollywood, - varð fyrir því að sjá einn þátt af Beverly Hills á Skjá einum. 90210 frá byrjendaárunum - jahérnahér. Eins og mér og öðrum fannst þetta miklir gæðaþættir fyrr á árum...

Annars var jolly gaman um helgina. Svo gaman að ég er enn með hassberur aftan á hálsinum og kúlu á enninu eftir að hafa skallað Hildi Edwald á ellefunni í hamaganginum. Ég slapp þó við að fá marblett í ofanálag. Gott rokk allavega, Matti við stjórnvölinn.

Svo er hún Ágústa mín komin heim, heimt frá Bristol. Nú fer hún að grafa upp skóladrengi í Skálholti, allavega krítarpípurnar sem þeir laumuðust með bak við Skólavörðu í frímínútum. Laumureykingar hafa lengi verið til...
Hlakka óendanlega mikið til þegar Kristín og Þórhildur afmælisbarn verða líka komnar heim, - og Ólöf úr flakkinu. Þá getum við loksins haldið alminlegt prattí. Svo veðja ég á að Rut og Stebbi birtist óvænt á Íslandi, - ákaflega gaman þá.

En svona í tilefni dagsins: til hamingju Þórhildur óskabarn og til hamingju íslenskar konur með kosningaréttinn fyrir 91 ári og allir í bleikt í dag! Fréttalesararnir á NFS verða flestir í bleiku, veðurkonan í bleiku, ég verð í fyrramálið í bleiku... sem minnir mig á að ég þarf að vakna eftir allt of stuttan tíma... farin að sofa, góða nótt.

2 Comments:

At 2:12 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

Já hassberur og hálsrígur takk fyrir mig þetta var nokkuð gaman bara langt síðan maður hefur misst sig svona almennilega á dansgólfinu.

 
At 8:16 f.h., Blogger Þórhildur Hagalín said...

takk ástin mín - tobi er farinn í skólann í bleiku, tautandi fyrir munni sér "kvennréttindadagur, kvennréttindadagur, á Íslandi er kvennréttindadagur í dag" svona til útskýringar fyrir thá sem gaetu haldid ad hann vaeri metro ;)

 

Skrifa ummæli

<< Home