föstudagur, desember 06, 2002

Ég vildi að ég gæti sagt ykkur að ritteppa undanfarinna daga sé tilkomin vegna mikilla lærdómsanna...
Jú, reyndar eru annirnar miklar en afköstin... tja, já... afköstin eru einkar dapurleg. En það er alltaf sama sagan, tölum ekki meira um það.

Eftir hjólakatastrófíuna á mánudaginn fór ég heim í heiðardalinn, heim til fjölskyldunnar til hjúkrunar og almenns dekurs. (Verð samt að taka það fram að ég ætlaði að fara hvort eð er, slysið kom svo bara á "heppilegum" tíma.)
Ég ætlaði þar að fá ró og næði til að læra án þess að þurfa alltaf að vera á stöðugum þeytingi um borg og bý. Jú vissulega fékk ég ró og næði, sérstaklega þar sem þrír hinna fjölskyldumeðlimanna eru mjög lagnir við að taka að sér alls kyns félagsstörf, áhugamál, vinnur og skóla og eru því mjög lítið heima. Það sem setur hins vegar strik í reikninginn er það að sú fjórða er sex ára og þarfnast pössunar þegar allt þetta fólk er úti að sinna félagslegum skyldum sínum. En þar sem litla skólabarnið er komið í rúmið kl. átta (því sem næst) þá ætti að vera nægur tími eftir til að lesa. En lögmálið sem við þekkjum öll hljóðar þannig að meðan maður hefur ennþá nægan tíma þá er maður yfirbugaður af leti. Það er ekki fyrr en maður er kominn í skítinn að maður fer að lesa. Sem er einmitt ástæðan fyrir því að ég sofnaði kl 6 í morgun.

Ég afrekaði hins vegar að horfa á ýmsar kvikmyndir af öllum stærðum og gerðum.
1. Gamalt uppáhald: Nightmare before Christmas. Fyrir ykkur sem þekkið hana: you know what I mean. Fyrir þá sem ekki hafa séð hana: Seeing is believing!
2. Taxi Driver: Hildur kom heim með hana á DVD til að vígja nýja spilarann sem fjölskyldunni áskotnaðist á dögunum. Tjah... hvað get ég sagt... hún náði ekki inn að hjarta en þetta var ein af þessum myndum sem mann hefur alltaf langað að sjá af því einhver sagði að hún væri góð. One check on the to do list.
3. Fríða og Dýrið: Önnur DVD-sýningin á heimilinu og örugglega ekki sú síðasta. Við horfðum á hana með nýju íslensku talsetningunni vegna þess að hann Bragi vinur minn og félagi fer þar með hlutverk Gastons - sem ég hefði aldrei fattað ef ég hefði ekki vitað af því, þar sem hann er mjög ólíkur sjálfum sér, "Þetta er bara söngvararöddin mín" sagði hann áðan, aðspurður. En hann stendur sig vel, strákurinn.
4. 24 hour party people: Við Hildur höfðum takmarkaðan tíma til að velja vídjó þar sem kjötsúpan beið á borðinu heima. Við kipptum því þessari með - af því að einhver hafði sagt að hún væri góð. Ég var hálfpartinn búin að búa mig undir einhver leiðindi... EN... þetta er frábær mynd. Næst þegar kjötsúpan er að kólna á borðinu heima þá skuluð þið muna að einhver sagði að þessi mynd væri góð og grípa hana með. (Þótt að mín skoðun sé auðvitað engin trygging fyrir því að ykkur líki hún)
5. The bridge over the river Kwai: One check on the To Do list. Löng yfirseta fyrir mynd sem ekki hefur elst það vel. Ekkert meira um það að segja.
6. Harry Potter and the chamber of secrets: Alltaf gaman að sjá þýðingu af ritmáli yfir í myndmál. Þessi þýðing er mjög vel heppnuð. Trú frumútgáfunni. Betri en fyrri myndin. Hlakka til að sjá næstu myndir. Jamm...

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home