Lærdómsþol mitt fer sífellt minnkandi eftir því sem nær dregur endalokunum. Varla hef ég tekið upp bók fyrr en ég er gagntekin leiða, vitandi það að allt í kringum mig er fólk að gera skemmtilega hluti og að það er svo stutt - en þó svo langt - þangað til ég verð í þeirra hópi. Nú langar mig til dæmis mun frekar að gera eitthvað skemmtilegt og uppbyggjandi eins og að þrífa sturtubotn eða moka fjóshaug heldur en að gera þessa ritgerð um hugmyndafræði frönsku byltingarinnar.
Nóg um það. Fer aftur til France á mánudaginn. Þar er rigning. Ef það breytist ekki í bráð þá verður nú ekki nema hálft gaman að koma heim aftur, - heim-út, það er að segja. Og þó, þá kannski tekur fólk eftir freknunum sem mér græddust á jökli.
0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home