Góðar fréttir
Búin að finna samastað í miðri hringiðu hundraðogeins. Fékk að vita í kvöld að íbúð sem ég hafði augastað á við Hallveigarstíg er mín ef ég vil hana. Ég þáði boðið umsvifalaust.
Við verðum tvær þar í hosiló, ég og Jósa. Þriggja herbergja, leigð á 100 þús, það verður víst ekkert ódýrara eins og ástandið er í dag. Ég er sátt.
Getum flutt inn strax um helgina þannig að ég get haldið upp á afmælið þar í næstu viku. Hver veit nema ykkur verði boðið.
8 Comments:
Æðislegt!! Til lukku skvísur, hlakka til að koma í kaffi og með því á Hallveigarstíginn ;)
Til hamingju elskan!! hljómar mjööög vel. kemst því miður ekki í heimsókn fyrr en um jólin!
til hamingju, elskan. hlakka til ad heimsækja thig um jolin.
Frábært! Innilega til hamingju með íbúðina, vonandi fæ ég að kíkja í heimsókn áður en ég fer ;)
Til hamingju snúlla mín! Þá verðum við grannar...:)
nei þið hljótið nú að fitna svona nálægt ölstofunni ... múhaha (";)
Til hamingju með íbúðina snúllan mín... hlakka til að koma í heimsókn enda hef ég tvær góðar ástæður, að hitta þig og hana jósu. Þú mátt alveg eiga von á því að ég kíkji oft í heimsókn. Einnig er skrifstofa samfylkingunnar á Hallveigarstíg. Vá þrjár ástæður...
Útlit fyrir að það verði gestkvæmt, frábært.
Svo verður reyndar að taka það með í reikninginn að meirihlutinn af þeim sem kvitta fyrir kommentin sín að ofan eru eða verða búsettar erlendis að staðaldri út þennan leigusamning...
Skrifa ummæli
<< Home