þriðjudagur, desember 12, 2006

Afmæladagar

Í fyrradag varð Elín frænka mín 14 ára. Í gær varð amma mín Herdís 76 ára, Ágústa Edwald 25 ára og Ari Klængur 26 ára. Í dag verður Þorbjörg 26 ára.
Til hamingju öll. Ég held upp á dagana í huganum, sérstaklega fyrir þá sem ég get ekki kysst beint á kinn.

Svo höldum við áfram að telja niður til jóla.

Það er búið að gera laufabrauðið.
Nú á bara eftir að kaupa jólagjafir, gera jólahreingerningu, kaupa jólakjólinn, baka piparkökur, kaupa möndlugjöf, skrifa jólakort og kaupa jólaskó.

1 Comments:

At 11:16 e.h., Blogger augnpot said...

Ammli ammli ammli - kaupa kaupa kaupa! Vesen í þessum desember alltaf. Mikið verð ég nú fegin að vera laus við prófin 18. des. Þá ætla ég að kaupa hitt og þetta og taka smá afmælis-rewind kannski hitta fólk og brosa. Vonandi hitti ég þig í góða skapinu sem ég verð í... until then kisses and hugs and no stupid bugs :)

 

Skrifa ummæli

<< Home