fimmtudagur, nóvember 16, 2006

Konan sem gat allt

Svo ég tali nú um eitthvað annað en stríðshrjáð svæði svona einu sinni. Tími til að ég komi heim, - í hausnum líka.

Ég má samt til með að halda áfram að monta mig: mér tókst í gær að prjóna húfu, í fyrsta skipti á ævinni. Og ekki seinna vænna enda stefnir í helkalt fimbulfrost um helgina.

Einmanalegt í hosiló því Jósa er í sveitaskóla á Húnavöllum að kenna 15 ára krökkum að dansa og syngja. Þau hafa tvær vikur til að læra Litlu hryllingsbúðina utan að, æfa framsögn og söng, búa til leikmynd og búninga og eina risavaxna mannætuplöntu.
Jósa er hetja.

2 Comments:

At 12:11 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

Þið eruð ógnarhetjur sambýliskonurnar. Samgleðst þér að eiga von á að vera með ylvolgan koll og eyru í frostinu,sannkölluð húfuhetja.

 
At 5:52 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

vá prjóna húfu hlakka til að sjá hana á haus þér, og líka sjálfan hausinn á þér um jólin
kossar

 

Skrifa ummæli

<< Home