sunnudagur, september 24, 2006

Nýja vinnan mín

Þetta fór þannig á föstudaginn að ég fékk náðarsamlegast leyfi til að halda áfram að mæta upp í Skaftahlíðina. Hins vegar verður talsverð breyting á mínum högum og vinnufyrirkomulagi, ég er komin nær eingöngu yfir í netfréttir. Þetta vilja hins vegar hinir háu herrar ekki viðurkenna að sé nein breyting á mínu starfi, - vegna þess að ef þeir viðurkenndu það, þá gæti ég litið svo á að þetta væri samningsrof ef mér félli ekki við nýja hlutverkið og gæti þannig litið svo á að mér væri sagt upp og labbað út með þriggja mánaða uppsagnarfrest.

Ég sé mjög mikið eftir því að handfjatla kameruna og klippa fréttirnar mínar. Ég sé óhemju mikið eftir því að vera hlekkjuð við tölvuna og fá ekki að fara á staðinn og hitta fólkið. Mér finnst þetta ekki góð skipti.

Hins vegar hefur mér aldrei fundist leiðinlegt að skrifa eða meðhöndla texta. Og ef ég labba út missi ég möguleikann á að geta farið á eigin vegum til - til dæmis Líbanons - á eigin vegum með kameru og komið til baka með efni í fréttir, Ísland í dag og í Kompás. Sem er skemmtilegast í heimi að gera!
Þannig að þetta er spurning um að þreyja innidaga á skrifstofu fyrir einstaka útiverkefni.
En það sem er líka er að ekkert er fastmótað ennþá, enginn veit hvernig endanleg mannaskipan verður. Það voru ýmsir settir í hlutverk sem þeir voru ekki endilega fullkomlega sáttir við. Fyrir utan það að á fréttastofunni hefur alltaf verið mikil hreyfing á starfsfólki. Þannig að þetta kemur allt í ljós.

9 Comments:

At 9:12 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

já maður verður að velja og hafna og fórna og gera málamiðlanir - en það er mikilvægt að það sé oftar gaman en leiðinlegt!
Gangi þér sem allra best í "nýja" starfinu, kossar gústa

 
At 9:47 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

Herdís mín! Allt sem á vegi manns verður í lífinu felur í sér tækifæri. Alltaf spurning hvort maður kemur auga á þau þegar maður mætir þeim. Þessi "vistaskipti" eru kannski einmitt svoleiðis og ég sé á skrifum þínum að þú sérð tækifærin sjálf. Nýttu þau. Ég gladdist yfir að sjá að samleið ykkar 365 mun vara áfram. Þú hefur staðið þig vel og áttir það skilið.
Þuríður frænka

 
At 11:59 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

Ég á eftir að sakna þess að sjá þig ekki á skjánum... mér fannst þú taka þig svo afskaplega vel út þegar þú þuldir fréttir á tölvuskjánum mínum.

 
At 3:23 e.h., Blogger vilborg said...

Jákvæðu punktarnir er það sem skiptir máli og þú stendur ekki eftir atvinnulaus.
Var ekki málið að vera hamingjusamur í hjartanu?
kv, Villý

 
At 7:21 e.h., Blogger augnpot said...

Herdís mín - þú ert sko ekki þekkt fyrir uppgjöf eða svartsýni! Fyrst og fremst þá hélstu vinnunni fyrir það hvað þú ert massadugleg og fjölhæf kona. Vona að þú komist til Líbanon - rock on girl!

 
At 11:13 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Skelltu þér bara í þunglyndið, ég skal drekka bjór og viský með þér alla daga vikunnar - hehe

 
At 7:26 f.h., Blogger Þórhildur Hagalín said...

á ekki bara að láta kylfu ráða kasti?!?

 
At 7:24 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Herdís mín! Ertu ekki bara búin að vera nógu lengi á landinu í einu? Er ekki kominn í þig ferðatitringur? Hugsaðu um Amazon fljótið, Suðurskautið og Nýja-Sjáland. Ja, jafnvel bara Hvannadalshnjúk á góðum sumardegi! Hugsaðu svo um netfréttir NFS...
Það er lífsnauðsynlegt fyrir okkur hin sem erum alltaf kyrr á sama stað að rembast við að læra eitthvað að geta fylgst með þér og látið hugann reika...

 
At 3:03 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Þetta eru vissulega vonbrigði, en af því að dæma sem ég hef heyrt af þér á undanförnum árum áttu eflaust eftir að snúa þessu upp í eitthvert spennandi ævintýri sem gaman verður að fylgjast með. Óska þér bara alls hins besta, kv. Kristín Þ.

 

Skrifa ummæli

<< Home