fimmtudagur, ágúst 24, 2006

Lýsi eftir þvottavél

Lumar einhver á nothæfri þvottavél sem ekki er þörf fyrir lengur?

Að öðru leyti held ég að við Jósa séum í góðum málum, kemur allt í ljós þegar við förum að fylla inn í íbúðina. Ég fæ lyklana í hendurnar á morgun, byrja að flytja inn um helgina. Jósa kemur hins vegar ekki fyrr en á sunnudagskvöld þannig að við tökum næstu viku líka í að koma okkur fyrir. Húsið er opið á laugardagskvöld og jafnvel boðið upp á vöfflur því svo á ég líka afmæli í næstu viku...
Sendið mér email ef ykkur er ekki kunnugt um heimilisfangið, gef það ekki upp á opinni síðu sem hefur verið gefin upp í íslensku glanstímariti - í óþökk.

1 Comments:

At 12:33 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Herdis - enginn linkur a uppahalds alpaklifrarana thina? Hvad er malid?

Siz

 

Skrifa ummæli

<< Home