mánudagur, september 04, 2006

Er á meðan var

Haustlægðirnar eru farnar að láta til sín taka og nóttin svört þegar ég hjóla í vinnuna. Hvar ætli endurskinsmerkin mín séu?
Ein haustlægðin lagðist á meðvitund mína í morgun. Ég fann bara um miðjan morgun að ég var farin að berjast við að halda sönsum fyrir framan tölvuna en skildi ekki af hverju. Ofan á allt annað talaði viðmælandinn í símanum ekki beinlínis í fyrirsögnum og meðan hann lét móðan mása rann sá vottur af vitund sem ég þó hélt dauðahaldi í út í sandinn. Svo hætti hann að tala og ég kom af fjöllum og bara hváði og tafsaði.
Hvorki mér né vinnustaðnum til sóma en lítið við því að gera þegar loftþrýstingurinn fellur og innankúpuþrýstingurinn með...

Frítíminn minn hefur að mestu farið í flutninga og fiff í kringum þá. Flutti lögheimilið mitt í fyrsta skipti í 12 ár. Ekki þar fyrir að ég hef ekki haft fasta búsetu á Eyrarbakka síðan ... líklega ekki síðan einhvern tíma í framhaldsskóla.
Var á Selfossi um tíma, svo London, fjórir dvalarstaðir þar, aftur heim, Laugavegur (þó ég eyddi reyndar miklum hluta af mínum tíma á Holtsgötu og síðar á Kárastíg...), Frakkland, Laugavegur, Svíþjóð, Laugavegur - og sumrin á fjöllum. Og núna Hallveigarstígur.
Nú á ég alvöru heimili þar sem hægt er að sitja við eldhúsborðið og lesa Moggann. Búin að bjóða tvisvar heim í grjónagraut og boðin og búin að bjóða fleirum, bara að nefna það ef ég verð ekki fyrri til og hringi í ykkur.

3 Comments:

At 10:49 e.h., Blogger augnpot said...

Eina leiðin til að verjast haustinu er með sókn. Nýta hverja einustu sólarglætu og skella sér í laug eða göngu... haustlitaferð á Þingvelli e.t.v.
Ef allt fer til fjandans þá bara pantar maður sér far til sólskinslands einn tveir og púff.

 
At 10:56 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

já það voru góðir tímar þegar við bjuggum á holtsg. og kárast. mas fram á nótt og seinir morgnar... ef allir byggju við jafngóðar aðstæður þá væru engin vandamál (guð veit við höfum leyst þau öll 1007 sinnum), gangi þér vel að koma þér fyrir gullið mitt, ágú

 
At 12:19 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Takk fyrir linkinn. Og nú þarftu að bjóða mér í kaffi takk...

Annars fyndið, þú uppfærir pínu sjaldan by the way, að ég er búinn að koma nokkrum sinnum á nýjustu færsluna og lesa HÆGÐIRNAR í staðinn fyrir haustlægðirnar.

Hils,
Siz

 

Skrifa ummæli

<< Home