"Aldrei átt erfiðari daga"
Fyrirsagnir eru listgrein hjá Séð og heyrt.
Jú, vissulega var erfitt þegar pabbi dó og svo hef ég lent í einelti og ástarsorg og staðið uppi atvinnulaus og heimilislaus fjarri heimahögunum... en satt segir séð og heyrt, óvissan á NFS slær þetta allt saman út!!!
Annars var verið að boða til starfsmannafundar, með hálftíma fyrirvara. Þeir eru að pússa fallöxina. Þannig að brátt tekur óvissan enda.
Fyrir þá sem eru forvitnir getiði lesið það nýjasta á vefsíðunni hans Denna. Það er þar sem starfsfólk NFS fær að vita hvað er í gangi, - ekki eru yfirmennirnir allavega fyrstir með fréttirnar.
2 Comments:
Alveg sama hvað gerist, þú munt spjara þig eins og þú hefur alltaf gert
Luv
Kristín
Herdísi á CNN!
Skrifa ummæli
<< Home