Kompás á netinu
Og nú er Kompás óruglaður!!!
Þeir hafa metið það sem svo að ferðasagan mín frá Líbanon myndi selja svo margar áskriftir að þeir ákváðu að rugla hana... eða eitthvað...
Ég skil þetta ekki.
Annars held ég að það sé hægt að sjá þáttinn óruglaðan á netinu. Sem sagt, farið á www.visir.is og veljið VefTV. Þá er hægt að velja Kompás og velja þáttinn frá 5.nóvember. Ef þið eruð með mackintosh tölvu, óheppin þið... VefTV vísis er ekki gert fyrir makka og þá þurfiði að horfa á þáttinn frá byrjun í stað þess að geta valið kaflaheitið Lífið eftir stríðið og farið beint. Og kannski komist þið aldrei lengra en 1-4 mínútur inn í innslagið áður en það byrjar sjálfkrafa upp á nýtt.
Ég þreytist ekki á að reyna að vera hávær þrýstihópur fyrir hönd (að öðru leyti hamingjusamra) makkaeigenda við ritstjóra og vefsmiði vísis og þeir segja: þetta er allt að koma.
2 Comments:
Kíkti á veftíví á vísi til að sjá fréttina þín. Rosalega vel unnin og geinilegt að þú ert á réttri hillu...ég táraðist og allt(var það ekki markmiðið).
Luv til þín
Rúna
ég er svakalega stolt af þér!
luv,
rut
Skrifa ummæli
<< Home