Bombað til steinaldar...
... það sem ekki var þar fyrir.
Undarlegt tímaflakk að eiga viðskipti við skrifstofu Alitalia í Beirút. Ég ætlaði að fresta fluginu mínu á fimmtudaginn. Konan sem ég talaði við sagðist þurfa að fá samþykki frá London af því í kerfinu þeirra væri ekki tekið fram hvaða skilmálar giltu um farmiðann minn. Gott og vel, ég hélt nú ekki að það þyrfti að taka svo langan tíma fyrr en konan sagðist skyldu senda telex.
Ég varð hvumsa og ákvað nú að fara upp á skrifstofuna þeirra til að sjá hvernig þetta fornaldarskrímsli liti út, hvort hún sæti með fingurinn á morstakkanum. Hún var steinhissa á því að london væri ekki enn búin að svara. Ég bað hana þá um að hringja bara, það væri besta leiðin til að fá skjót svör. "Nei, við megum ekki hringja langlínusímtöl."
Aftur varð ég forviða.
"Þú ert þó allavega búin að senda þeim email til að reka á eftir þessu?"
"Eeeemmm... ég er ekki með email í tölvunni minni en ég get beðið skrifstofustjórann um að senda svoleiðis."
Þá stalst ég til að kíkja á fornfálega tölvuskjáina og fór næstum því að gráta af ónostalgíu þegar ég sá græna stafi á svörtum fleti.
Stundum verður maður bara kjaftstopp.
Til að gera langa sögu stutta fór flugvélin mín á fimmtudaginn án þess að ég væri búin að fá svar um hvort ég mætti breyta fluginu mínu. Svarið kom á telexi daginn eftir og þá gat ég breytt því.
Er í gústuhúsi í bristol en á leiðinni til london eftir klukkutíma. Gisti hjá Aliyu þar og hitti Alf. Kem heim til Íslands um miðætti annað kvöld og þarf að mæta í vinnu klukkan sex morguninn eftir.
5 Comments:
Ertu þá tilbúin í næsta ævintýri? Langar þig ekki að kíkja til Hollands og fara til Eþíópíu og bjarga vinkonu minni frá því að missa móður sína í annað sinn. Getur þú ekki sjarmerað bossana til að hleypa þér í burtu með cameru og aur (",)
hæhæ
fann bloggið þitt í gegnum Höllu og langaði bara að seigja hæ
kv Gína
Frábært að fá svar daginn eftir flug... Vertu annars margblessuð og velkomin heim fagra frú. Jei jei!
Það er bannað að koma til London nema kíkja í kaffi eða hitta mann niðrí bæ... Skamm skamm... Annars er mega gaman að fylgjast með ævintýrum þínum um heiminn.
kv, Sir Hermannsig :)
obbosí, það er rétt, ég steingleymdi því að þið eruð komin þangað, allt svo nýskeð.
Lofa að kíkja í heimsókn næst. Annars eigið þið nú líka eftir að kíkja í kaffi í nýja húsið mitt.
Skrifa ummæli
<< Home