föstudagur, október 20, 2006

Takk Ísrael!

Klasasprengjur er líklega einn mesti óþverri sem ég hef nokkurn tíma séð. Enginn hernaðarlegur tilgangur, eingöngu að drepa óbreytta borgara og gera land óbyggilegt.

Get ekki séð fyrir mér uppfinningamanninn sem fattaði upp á klasasprengju og kom svo stoltur heim úr vinnunni og sagði: ég var að finna soldið upp, það er algjör snilld.

Stundum springa þær við létta snertingu, stundum ekki. Stundum eru krakkarnir búnir að henda þeim á milli nokkrum sinnum áður en þær springa. 20 manns hafa látist af völdum klasasprengja eftir að stríðinu lauk og blaðamennirnir fóru heim.

Sprengjuleitarmennirnir sem ég talaði við sögðu mér að stundum kæmu þeir til að hreinsa svæði og fyndu þá hrúgur af ósprungnum sprengjum þar sem fólkið hefur bara drifið sig í tiltekt af sama drifkrafti og Vilhjálmur Þ. í gúmmíhönskum.

Tja, hvað á blessað fólkið að gera? Bananarnir að ofþroskast úti á akri, appelsínurnar að detta af trjánum og mygla og þar með lífsviðurværið þeirra fyrir næsta árið uppétið af ormum; ef það var þá ekki þegar ónýtt vegna þess að enginn hefur getað farið af stað til að vökva. Og margt af þessu fólki tók lán til að byggja upp húsin sín eftir sprengjuárásir.

75-80% af þessum sprengjum var varpað á 48 tímum EFTIR að búið var að samþykkja vopnahlé. Þetta er ekki bara orðið á götunni, þetta hef ég beint frá starfsmönnum Sameinuðu þjóðanna, - fólkinu sem var búið að vera að hreinsa upp jarðsprengjur frá því Ísraelarnir fóru og þarf nú að byrja allt upp á nýtt af því hreinu svæðin eru orðin hættuleg aftur.

Takk Ísrael!

5 Comments:

At 10:27 e.h., Blogger Björk said...

Alltaf áhugavert að fylgjast með ferðum þínum Herdís. Því miður er maður svo einfaldur og lifir í svo öruggum heimi að maður áþað til að hugsa að eftir að vopnahlé hefur verið saman að þá sé allt á uppleið. Því miður er það ekki svo gott.
Áttum annars mjög góðan dag á Gígjökli í dag, þú kemur með næst.

 
At 1:04 e.h., Blogger augnpot said...

Já þeir sýndu svo sannarlega sitt rétta eðli þessir sjálfhverfu Ísraela pólitíkusa/hernaðarbullur. Ég ætlaði að kaupa mér náttbuxur um daginn en hætti við vegna þess að þær voru framleiddar í Ísrael. Kúkakúkar! Ég ætla einfaldlega að sniðganga vörur frá Ísrael hér eftir.

 
At 10:05 f.h., Blogger Hjalti said...

Ja, thetta er ohugnanlegt. Enn verra thegar madur hugsar til thess ad 2/3 af ollu thvi fjarmagni sem Bandarikjamenn veita til erlendra rikja fer i israelska herinn.

 
At 6:58 e.h., Blogger pixy said...

- og er sjálfsagt flokkað sem þróunaraðstoð í ríkisbókhaldinu...

 
At 1:27 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Mjög áhugaverð skrif hjá þér!

 

Skrifa ummæli

<< Home