þriðjudagur, júlí 30, 2002

Ég er í svo mikilli tilvistarkreppu þessa dagana, ég veit ekki hvað ég á af mér að gera. Ég veit svei mér ekki hvort ég er á réttri hillu. Leiðinlegt að vera svona klofinn persónuleiki. Skynsami hluti minn segir mér að ég sé á góðri leið með að verða nýtur og góður þjóðfélagsþegn og að það sé svo sannarlega það mest eftirsóknarverða í lífinu því þannig geti maður best búið sínum 1,45 börnum og 0,78 hundi gott og hamingjuríkt heimili.
En svo er það rótlausa ég sem vill sjá og þekkja allt sem er til í heiminum og líður illa að vera föst of lengi á sama staðnum... Ég ætlaði alltaf að verða flakkari þegar ég yrði stór. Svo varð ég skynsöm...
Ég hélt ég gæti sameinað þetta tvennt í utanríkisþjónustunni og á tímabili leit það mjög vel út en... tja... ég veit ekki... allavega ekki alveg strax. Meðan ég er enn ung og laus og liðug og ekkert allt of skynsöm þá á ég að vera einhvers staðar annars staðar. Ekki þar fyrir að þetta er mjög næs staður... soleiðis. Ég er bara ekki nógu ráðsett fyrir þennan pakka.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home