Ég fór á Nanoq-"rýmingarsöluna" í gær og var örugglega síðust allra Íslendinga. Maaaan... þetta er örugglega mest lame útsala í heimi og ekki rýmingarsala fyrir fimm aura. Öll þessi sorgarsaga er sem sagt ekki annað en eitt stórt markaðssetningartrikk.
Það er samt ekki hægt annað en dást að því þrátt fyrir allt hversu vel þessir stjórnendur þekkja sitt heimafólk. Ef það fréttist á Íslandi að einhver fari á hausinn þá hlakkar í fólki sem bíður í ofvæni eftir rýmingarsölunni því eins dauði er jú annars brauð. Svo þegar útsalan loks opnar þá bíður fólk í röðum fyrir utan og hleypur inn til að gera kjarakaup.
Nema hvað að í þetta skiptið voru engin kjarakaup. En enginn virtist átta sig á því. Fólk var svo yfir sig hamingjusamt í rýmingarsölugírnum, of uppveðrað af því að það hélt sig vera að græða á tapi annarra. Og enginn tók eftir því að andi yfirstjórnar Nanoq sveif yfir afgreiðsluborðunum og hló að firringunni.
0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home