föstudagur, september 20, 2002

Fyrst ég er búin að tilkynna alþjóð um þessa leynisíðu þá er eins gott að ég standi mig að uppfæra fréttirnar.
Stundum finnst mér samt að ekkert hafi gerst, að ég hafi frá engu að segja, og yfirleitt hef ég ekki nægan tíma til að skjóta inn hinum djúpu heimspekipælingum sem ég vildi svo gjarnan koma í orð. (trúið mér, ég er í alvöru mikill spekingur... inni við .. erm... beinið.)
En svo hugsa ég mig örlítið um og þá man ég að ég get til dæmis sagt frá því að ég hitti Vigdísi Finnbogadóttur á þriðjudaginn. Það var smá samkoma fyrir frönskunema og franska nema, rétt til að kynna fólk í upphafi annar. Svo vildi svo til að Vigdís átti þar leið fram hjá og Torfi Tulinius, kennarinn minn, kallaði á hana og kynnti hana fyrir hópnum. Hún var ósköp vinaleg og spjallaði soldið við okkur en þurfti svo að drífa sig. Þetta var í annað skiptið sem ég sé þessa merku konu, það fyrra var nú fyrr í sumar, í 14. júlí-boði á vegum franska sendiráðsins. Í öll mín tuttugu-og-tvö ár hafði ég ekki séð hana fyrr en þá, og núna tvisvar á þremur mánuðum, skemmtilegt.
Og svo þarf ég að biðja um ráðningu á draumi: mig dreymdi í alla nótt að ég var í ferðalagi í Frakklandi með tveimur Frökkum, Quentin og Sebastien. Við vorum sko að ferðast í fína gamla VW rúgbrauðsbílnum hans Quentins. Við vorum svo á leið heim til Íslands, með Norrænu, með bílinn, og rétt áður en við lögðum af stað áttuðum við okkur á að við vorum með í bílnum 40 gr af marijúana og við ákváðum bara að taka það með okkur til Íslands. Svo gekk draumurinn að mestu leyti út á þetta, við vorum að finna felustaði, svitna fyrir framan tollverði o.s.frv. Skrýtið... Hvað merkir þetta? anyone?

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home