þriðjudagur, september 17, 2002

Ég er sem sagt komin heim núna og þarf að fara að drífa mig í að vinna upp það sem ég hef misst af í skólanum. Ég er að halda áfram námi mínu í frönsku og stjórnmálafræði, það er allt að skýrast hvaða kúrsa ég tek og hverju ég þarf að sleppa, þetta kemur allt í ljós. Vandamálið mitt er, eins og alltaf, að mig langar til að gera allt, allt í heiminum. Ég verð alveg örugglega með miklu fleiri kúrsa en mælt er með. Svo þarf ég að vinna og vinna til að vinna upp í þessa ferð og hina sem ég er að fara til Brussel í október. Svo er nýjasta dellan hjá mér að ganga í björgunarsveit... þetta verður skemmtilegt. Ég var einmitt á fyrstuhjálparnámskeiði um helgina, mjög skemmtilegt. Nú kann ég sitthvað til að bjarga fólki í hinum ýmsustu lífshættum.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home