Ég fór á nýju Harry Potter myndina í gærkvöldi. Ég hlakkaði soldið til að sjá hvernig þeir myndu útfæra the pixies - litlu stríðnisálfana. Fyrir þessu liggja persónulegar ástæður sem löng saga er að segja frá... kannski hún komi einhvern tíma hingað inn.
Ég fékk vægt áfall. Við skulum bara segja að við Johanna Katherine Rowling höfum ekki líka mynd af þessum verum í hugum vorum. Af hverju bláir? Af hverju svona ljótir? Þetta eru ekki skrímsli, bara soldlir hrekkjalómar. Mér fannst ég bara verða taka upp hanskann fyrir lítilmagnann.
Skondin tilfinning alltaf þegar maður fer í bíó og þekkir plottið fyrirfram út í ystu æsar en veit samt varla hverju maður getur átt von á.
Næsta bíóferð: LOTR. Damn, ef ég væri ekki í prófum myndi ég lesa hana aftur, rétt sem snöggvast.
0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home