Maður hlýtur að spyrja sig: fyrir hvern er ég að skrifa og hvers vegna er ég yfirhöfuð að mæta í vinnuna? þegar eftirfarandi eru mest lesnu fréttirnar á Vísi:
# Eberg með lag í The O.C.
# Cruise-hjónin fagna enn
# Jói og Gugga í heilagt hjónaband
# Lét lagfæra brjóstin
# Öllu lokið hjá McCartney og Mills
# Einar Ágúst aftur á svið á næstunni
# Tvífari Beckham fækkar fötum
# Atli skemmtanalögga þrítugur
8 Comments:
Herdís mín!
Þessi niðurstaða segir nú meira um fólkið í landinu en þig sem fréttamann. En svona nördar eins og ég og fleiri lesum ekki topp tíu fréttalistann heldur bara hinar fréttirnar (eins og um öryggismál á Kárahnjúkum) og þá geturðu reynt að hugsa sem svo að þú sért að skrifa fyrir hugsandi fólk. Svo manstu að eldri kynslóðin er ekki sífellt að fletta á netinu - enda sumir hverjir í eldri kantinum ennþá dauðhræddir við þetta "skrímsli" sem tölvur geta verið. Ánægð með málfarið og stílinn hjá þér á fréttum og bloggi - en hef aldrei þolað þetta orð "skúbb" er ekki hægt að finna eitthvað betra orð yfir þetta??
Kveðja frá Þuríði frænku þinni
Svona er þetta Herdís mín, laun heimsins eru vanþakklæti...
Ég er sammála Þuríði frænku, er ekki tímabært að íslenska slettuna "skúbb". Tala hér sem ein af meðlimum slettusjóðs Neistatúnsfjölskyldunnar.
Og hverju stingiði upp á í staðinn?
"þegar stórt er spurt" segir einn aðal"skúbbarinn" í bloggheimum gjarnan í lok pistla sinna....
Ég mun leggja höfuðið í bleyti og skora á málverndunarsinna og íslenskufræðinga fjölskyldunnar að gjöra slíkt hið sama. Við munum komast að niðurstöðu fyrr en síðar svo eftir verður tekið. Hvernig hljómar t.d. sagnorðið "að feykja"; "Fréttamaðurinn feykti tveimur fréttum í dag"; eða nafnorðið "fréttafeykir" (kannski svolítið jólasveinalegt nafnorð). Skora á fólk að koma fram með hugmyndir.
Þuríður
Hver er þessi Atli?
Ég opna aldrei Vísi ... nema það sé frétt um einhvern sem ég þekki í fréttablaðinu ... en ég kíki stundum á síðuna þína :)
Kíki reyndar aðallega svona sjaldan á Vísi þar sem mér finnst hönnunin óaðlaðandi... lítið við því að gera ;)
...en ég veit ekki heldur hver þessi Atli er ;O) ;)
hlýtur að hafa verið gott partí, þetta þrítugsafmæli, fyrst fólk er svona æst í að lesa um það...
Skrifa ummæli
<< Home