föstudagur, júní 28, 2002

Og hvers vegna hef ég ekkert bloggað ennþá? Jú, ég hef verið að koma í gegn reiðinnar býsnum af yfirflugs- og lendingarleyfum fyrir ýmsar flugóðar þjóðir, svo þarf ég að skrifa verbalnótur til um 100 utanríkisráðuneyta vítt og breitt um heiminn og svo þarf ég að pikka inn eitt stk. fundargerð...

en nú er komið að því að þurrka tár og þakka vinum og vandamönnum og öllum sem hafa stutt mig dyggilega við uppsetningu þessarar síðu. Að öðrum ólöstuðum verður þó Rut að eiga mesta heiðurinn, takk Rut, fyrir að koma mér af stað og fyrir allt sem ég stal frá þér!!!
Og svo vil ég þakka öllum traustum vinum sem hafa séð sér fært að skrifa nafn sitt á spjöld sögunnar... ykkar verður minnst um ókomna framtíð!!! !!! !!! !!! !!! !!! !!! !!!

Eníhjú, góða helgi, hafið það gott.

Segið mér... er ég kannski á rangri hillu?


Sjáðu hvaða týpa þú ert

Jeee Rut, við erum alveg eins!
Busy ... meira síðar
(ótrúlegt, samt hefur maður alltaf tíma fyrir svona quiz-vitleysu)

Samkvæmt kaffiprófinu er ég
Latte!
og samanstend af tvöföldum espresso og flóaðri mjólk.
Hvernig kaffi ert þú eiginlega?

fimmtudagur, júní 27, 2002

maaaaan... ég er ge'eigt stolt... fyrst að Rut segir að þetta sé flott hjá mér þá hlýtur það að vera þó nokkuð gott af algjörum amatör. Nú er ég tilbúin að taka á móti öllum heiminum!!!
... og nú þarf ég víst að fara að koma með einhver gáfuleg komment... húffalapúff...

miðvikudagur, júní 26, 2002

Ég veit þetta hefur ekki verið gáfulegt hingað til hjá mér, ég hef verið að koma mér fyrir. Núna er þetta orðið sæmilegt og ég get líklega farið að byrja á morgun þegar um hægist so stay tuned...

þriðjudagur, júní 25, 2002

Vill einhver segja mér hvernig ég set íslenska stafi inn í sniðmótið...

mánudagur, júní 24, 2002

JÚHÚ og jibbíkóla (smá byrjandaörðugleikar - tæknin eitthvað að stríða mér, sjáiði til). Held að ég sé allavega komin upp á lagið með þetta núna, skál í boðinu fyrir því!!!

OK ef þetta virkar hjá mér núna þá verð ég yfir mig hamingjusöm

halló heimur!