Gleðileg jól og gæfuríkt ár
Það er helst tíðinda á nýju ári að ég er að skipta um vinnu. Nú ætla ég að hætta að skrifa á netið og fara að skrifa fyrir nýtt blað undir gömlu nafni.
Ég er að fara að vinna á DV, en eins og kemur í ljós á föstudag þegar nýja DV kemur út undir ritstjórn Sigurjóns M. Egilssonar með gjörbreyttri ritstjórn, þá verður horfið frá ritstjórnarstefnu sem DV hefur orðið frægt að endemum fyrir á liðnum árum.
Ég væri ekki að fara út í þetta ef mér fyndist ekki vit í því.
Svo bið ég landsmenn til sjávar og sveita vel að lifa á nýju ári.
Takk og bless.
4 Comments:
gledilegt ár elsku herdís mín, óska thér gaefu og velfarnadar í nýju starfi :)
Aldeilis aldeilis! Ég veit þú átt eftir að standa þig frábærlega í nýju vinnunni. Til hamingju elskan!
Til lukku með nýja starfið en verð að viðurkenna að mér finnst súrt að missa þig úr Skaftahlíðinni :)
Alltaf súrt að kveðja gott fólk. En eins og staðan var, þá var þetta það eina rétta.
Skrifa ummæli
<< Home