jamm... góð helgi, ekki satt.
ég fór í útilegu norður á Akureyri. Við vorum ekki að sækjast eftir hátíðarhöldunum - nei, við fórum sko í túristaferð! Við byrjuðum reyndar okkar Akureyrardvöl á því að skreppa niðrí bæ og fara á Kaffi Akureyri sem var kannski smá svindl í túristaferð. Enda sá ég líka eftir því... Þar inni var of heitt, of troðið, of leiðinleg tónlist (nema stundum komu reyndar ágætis lög en þá varð það of pirrandi að geta ekki farið og dansað vegna þess að þarna var of heitt og of troðið)
en eeeenívei...
á laugardeginum skildum við tjaldið bara eftir á Akureyri og fórum í one-day-trip. Byrjuðum á Mývatni þar sem við urðum fyrir árás milljón mannætumýflugna og flúðum æpandi. Þaðan fórum við í Námaskarð sem er stórkostlegt en samt örugglega en skemmtilegra í sólskini. Svo skoðuðum við Dettifoss í hellirigningu og nei, það var ekki bara fossúðinn, það var mun meira en svo. Svo rúlluðum við niður eftir og komum við í Ásbyrgi, við ætluðum varla að nenna út en ákváðum fyrir rest að rölta inn í botninn og maaaan, það var sko þess virði! Þá var líka búið að stytta upp og húffalapúff, ótrúlega flottur staður!
Eftir að hafa keyrt kringum Tjörnesið og fengið okkur pylsu á Húsavík fórum við og heilsuðum upp á Ágústu í Hafralækjarskóla. Hún sagði okkur allt fínt að frétta og sýndi okkur alls kyns sem hún er búin að grafa upp: bein og brons og kjálka úr kaþólskum kindum - eða kannski jafnvel heiðnum! Þar var líka fyndnasti Pólverji sem ég hef á ævi minni hitt.(Reyndar einn af fáum sem ég hef á ævinni talað við, enívei...) Hann sýndi okkur fullt af einnarmínútukvikmyndum sem hann hefur tekið upp, leikstýrt og er eini leikarinn. Mjööög skondið!
Þegar við komum heim á sunnudagskvöldinu vorum við svo dauðlúin að við fórum beint í ból.
Mánudagurinn var dagur hinnar miklu heimferðar. Við fórum nebbla ekki beinustu leið heim... Svona af því að þetta var nú næstsíðasti dagurinn hans Quentins á landinu þá ákváðum við að gera sem mest úr ferðinni og fara ekki hina hefðbundnu og frekar dull leið milli Akureyrar og Reykjavíkur. Þess í stað beygðum við út af leiðinni rétt eftir Akureyri og fórum á Ólafsfjörð. Við keyrðum upp á Múlann og borðuðum pikknikk þar á svimandi hárri og brattri klettabrún - excellent. Svo rúlluðum við yfir Lágheiði og Skagafjörðinn heim í þokunni og reyndum mikið að finna bestu þokutónlistina.
Og svo komum við heim - mörgum klukkutímum síðar.